Opnunarhátíð bókasafns
Fimmtudaginn 13.ágúst 2026

Þá er loksins komið að opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði!
Við ætlum að fagna þessum stóra áfanga með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna fimmtudaginn 13. ágúst. Það verður nóg um að vera frá kl. 16:00 og verslanir Fjarðar verða opnar til kl. 19:00.
Á 1. hæð í Firði verða bæði Pandan og Klói Kókómjólk á vappinu og taka vel á móti gestum. Frá kl. 17:00 geta gestir og gangandi fengið frítt airbrush-tækifæristattú.
Á Bókasafninu sjálfu verður svo sannkölluð hátíðarstemning. Þar verður meðal annars listasmiðja fyrir börnin, skemmtiatriði, kynning frá arkitektum og margt fleira. Þetta er því frábært tækifæri til að koma og skoða nýja Bókasafn Hafnarfjarðar, upplifa nýja rýmið og taka þátt í því að fagna þessum nýja samkomustað í hjarta Hafnarfjarðar.
Við hlökkum til að sjá ykkur og fagna með ykkur fimmtudaginn 13. ágúst!
📅 Fimmtudagurinn 13. ágúst
⏰ Dagskrá frá kl. 16:00
📍 Fjörður – Bókasafn Hafnarfjarðar