Opnun bókasafns Hafnarfjarðar

Nýr áfangastaður í Firði er orðinn að veruleika. Bókasafn Hafnarfjarðar hefur opnað glæsilegt nýtt húsnæði á 2. hæð og býður bæjarbúum velkomna í bjart og lifandi umhverfi. Þar er að finna meira en hefðbundið bókasafn – þetta er samkomustaður fyrir alla, með aðstöðu til lesturs, náms, leikja og fjölbreyttrar afþreyingar fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur.

Opnunartími bókasafnsins:

Mán-fös: 9-19

Lau-sun: 11-17

 

En formleg opnunarhátíð fer fram fimmtudaginn 13.ágúst. Sjá viðburð á facebook.

 

Afþreying fyrir alla á bókasafninu:

  • Listasmiðja
  • Verksmiðja
  • Næðisrými
  • Skemmtileg barnadeild
  • Hljóðver
  • Fjölnotasalur
  • Tónlistardeild
  • Fundarrými