Heimar og himingeimar | Bókasafn Hafnarfjarðar

Heimar og Himingeimar sem fer fram 4-6.september er samkoma fyrir búningaáhugafólk og iðkendur búningaíþrótta þar sem áhersla er lögð á leik, sköpun og jákvæða samveru fyrir fólk á öllum aldri.

Boðið verður upp á heila helgi fulla af fjöri, sköpun, keppnum, smiðjum, kynningum og námskeiðum, auk fjölbreyttrar dagskrár í aðdraganda samkomunnar.

Því maður er aldrei of gamall til að leika sér, skapa og leyfa ímyndunaraflinu að ráða för. Hjá Heimum og Himingeimum gefst fólki tækifæri til að stíga út úr hversdeginum, bregða sér í ný hlutverk og ferðast um ólíka heima – og jafnvel alla leið út í himingeimana.

Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar.