Ziaja í Fjörð

Við bjóðum Ziaja hjartanlega velkomna í Fjörð!
Þann 1. september opnaða Ziaja glæsilega verslun í Firði. Verslunin snýr að Strandgötunni, en þar var verslunin áður fyrr.
Ziaja er með um 360 vöruliði þar á meðal eru sturtusápur, body lotion, sjampó, hárnæring, dag- og næturkrem, lituð dagkrem, maskar, fótakrem, ljúfsápur, sólarvörn, tannkrem, munnskol, svitalyktaeyðir já og líkamsskrúbbar (Body scrub) sem og olíur.

