Platan á 6.hæð steypt í dag

Allir veggir eru nú reistir á 5.hæð og plötu 6.hæðar er verið að steypa í dag, föstudaginn 12. apríl. Þá er áætlað að uppsteypa á íbúðarhlutanum og þar með öllu verkefninu ljúki í maí 2024. 

Hótelið er full reist og búið er að loka þakinu. Einnig er búið að setja glugga í hluta af hótelbyggingunni og verið er að vinna í innanhúsfrágangi. 

 

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá skoðunarferð dagsins, en á samfélagsmiðlum Fjarðar er hægt að sjá fleiri myndbönd frá skoðunarferðinni.

Verið að steypa plötuna á 6.hæð

Búið að setja glugga að hluta til í hótelbygginguna

Útsýni yfir höfnina

Tekið frá 3.hæð

Tekið frá stigangi í hótelbyggingu

Íbúða turn til vinstri og hótelbygging til hægri

Þak á hótelbyggingu

Íbúðaturn sem snýr að gamla bænum

Hótelbygging

Hótelbygging