Dýrabær í Fjörð!

Nú hafa gæludýraeigendur í Hafnarfirði ástæðu til að gleðjast, því Dýrabær hefur opnað nýja verslun í Firði! Þetta er sjöunda verslun fyrirtækisins og kærkomin viðbót við verslunarflóruna í miðbæ Hafnarfjarðar.
Það er sérstaklega ánægjulegt að Dýrabær skuli nú opna í Hafnarfirði enda eru eigendurnir miklir Hafnfirðingar. Þau eru sjálf búsett í bænum og hafa um árabil rekið bæði lager og skrifstofu fyrirtækisins hér. Nú hefur loksins bæst við verslun á heimavelli!
Dýrabær er 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki sem leggur ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu. Í versluninni má finna fjölbreytt úrval af vörum fyrir gæludýr og starfsfólkið er ávallt tilbúið að aðstoða við að finna það sem hentar þeirra dýrum best. Meðal annars er boðið upp á fóðurráðgjöf fyrir þá sem eru óvissir um hvaða fóður hentar þeirra gæludýri.
Að sjálfsögðu eru ferfættir viðskiptavinir hjartanlega velkomnir í verslunina 🐶😺
Edda Dögg og Dagur hlakka til að kynnast hafnfirskum ferfætlingum og fjölskyldum þeirra!
Við bjóðum Dýrabæ hjartanlega velkomin í Fjörð 💙