Flugeldasýning 20.11.26 – opið til 20:00!

Það verður mikið um dýrðir í jólabænum Hafnarfirði föstudaginn 20. nóvember! 🎄✨
Jólaþorpið opnar kl. 17:00 og verslanir Fjarðar verða opnar til kl. 20:00 í tilefni bæjarhátíðarinnar.
Kl. 18:00 verður hátíðleg stund í Firði þegar Ungmennaráð Hafnarfjarðar kveikir á UNICEF-hjartanu í tilefni af þátttöku Hafnarfjarðar í verkefninu Barnvænt sveitarfélag.
Kl. 19:00 tekur Sveinki á móti gestum í Jólaþorpinu og leiðir skemmtilega söngstund. Að henni lokinni verður glæsileg flugeldasýning frá Fjarðargötu, beint á móti Firði! 🎆
Komdu í jólaskapið með okkur og njóttu hátíðarstemningarinnar í hjarta Hafnarfjarðar! 💙
Sjá nánari dagskrá jólaþorpsins hér.