Afhending bókasafns Hafnarfjarðar

Á miðvikudaginn 13. maí tók Bókasafn Hafnarfjarðar formlega við lyklunum að nýju og glæsilegu húsnæði sínu á 2. hæð í Firði. Valdimar bæjarstjóri og Sigrún forstöðumaður bókasafnsins tóku á móti lyklunum við litla athöfn í nýja húsnæðinu.

Gestum og gangandi gafst kostur á að skoða nýja húsnæðið, sem vakti mikla eftirvæntingu meðal bæjarbúa. Stefnt er að opnun bókasafnsins þann 2. júlí 2026 og hlakka margir til að sjá þetta nýja menningar- og samkomurými.

Nánari upplýsingar um opnunina verða kynntar síðar.