Sumarkvöld í Firði
Nú er loksins komið að fyrstu kvöldopnun hjá okkur eftir stækkun Fjarðar, miðvikudaginn þann 13.maí opið verður til kl. 21:00. Fleiri verslanir og meira gaman!
.

100 fyrstu gestir fá gjafapoka frá kl 18:00. Athugið að 18 ára aldurstakmark er á gjafapokunum.
.

Lemon kynnir nýja drykkinn sinn “Self-love” og gefur gestum og gangandi smakk.

Kappahl verður með lukkuhjól og poppvélin verður í gangi.

Mjólkursamsalan býður upp á osta og gotterí.

Costco verður á svæðinu með frábæra vörukynningu, einnig verður hægt að skrá sig sem meðlim á svæðinu.

Leanbody kynnir vinsæla drykkinn “Homie” og gefur gestum og gangandi smakk.

Bylgjan í beinni frá Firði!

Rif verður með naut & benna á aðeins 3.690 kr frá kl 17:00 á meðan birgðir endast.
.
Dagskrá:
18:00 Gjafapokar & Elvis Presley setur kvöldið af stað

18:30 Sjonni & María með sumartóna

20:00 Bjarni Ara sér um að enda kvöldið með krafti
